01. desember 2008 klukkan 15:12
Hæhæ
Enn og aftur er blogg leti í manni
En já margt er búið gerast síðan ég bloggaði síðast en ég vil byrja á því að votta samúð mína til fjölskyldunar hans Ísaks. Ég var að vinna með honum í Hrísalundi í nokkra mánuðu og kynntist honum aðeins þar, hann var sko einstakur og stór skemmtilegur karakter. Ég komst að þessu að hann dó um helgina á facebook síðuna hans, þar sem fólk er að kveðja hann. Mjög spes að lesa orð frá honum einn daginn og svo er hann bara farinn þann næsta. Aldrei hefur einhver dáið svona ungur sem ég þekki og fynnst mér þetta mjög ógnvekjandi, ekki það að við vorum bestu vinir en maður þekkti hann og hafði gaman að honum. Hvíldu í friði Ísak.
En já við vorum svo heppin að fá Sillu og Palla í heimsókn í kringum 20 nóv og voru hérna í nokkra daga, það var mikið spjallað og brallað saman..:) Við gátum loksins boðið þeim í mat þar sem við erum nú komin með almennilegt eldhús og var rosa gaman að geta loksins boðið öðrum í mat:) Við heldum meira segja svo stórt matarboð þar sem, Silla, Palli, Guðrún og pabbi + börn komu þurtu sumir að koma með matarstel með sér þar sem við áttum ekki nóg:p en svona er þetta þegar maður er að byrja að búa:) Þetta var yndiselegt kvöld og maturinn heppnaðist líka svona vel:)
Við vorum líka svo heppin að fá eina jólagjöf snemma í ár, Silla og Palli fóru með okkur í IKEA og gáfu okkur rúm, við sofum sko eins og englar í því það er svoo gott. En það var ekki nóg, sama kvöld hringja mamma og palli og spurðu mig hvað mig langiði í jólagjöf frá þeim?? haldiði ekki að þau hafi ekki gefið mér flugmiða fram og til baka til ÍSLANDS um áramótin:D já ég er að koma til ÍSLANDS um áramótin, ég get sko sagt ykkur það að það er mikil tilhlökkun á þessum bæ:D Semsagt ég kem 26 des og fer aftur 4 jan:)
En aðeins nokkrum dögum seinna kom hún Harpa vinkona til Danmerkur í smá heimsókn og fékk að gista í svefnsófanum og var það alveg yndislegt að fá hana:) Við trúistuðum um alla köben og ég vona að hún hafi skemmts sér vel, allavega skemmti ég mér vel:D á sama tíma kom Halldóra mágkona Hinriks og mamma hennar og fengum við okkur kaffi með þeim, gaman að hitta þær:)
Núna er maður oðrin grasekkja eins og margir í kringum mig kalla það, yndislegi kærastinn minn er að fara í próf núna í desember gerir ekkert annað en að læra þessa dagana, ég held að ég hafi séð hann hálftíma á dag síðustu daga þar sem hann eyðir öllum stundum upp í skóla að læra. Reyndar gáfu þeir félagar sér smá frí tíma í gær og elduðu dýrindis hrygg sem mamma Jóns kom með um daginn og var það voða gott, einnig fékk ég líka loksins að sjá Jón:)
Talandi um Hinrik þá áttum við 3ja ára afmæli núna á föstudaginn, við ákvöðum að vera svo kærulaus að fara út að borða og hafa það gott, skal taka það framm að sá munaður (þar sem við sjálf borgum) hefur ekki verið leyfður síðan við komum hingað út þar sem slíkur peningur hefur ekki verið til staðar.En til hamingju við:)
Jæja ætli þetta sé ekki orðið nóg í bili, vona nú að ég taki mig saman í þessu bloggi og bloggi aðeins oftar:)
Kveðja við
Hinrik og María
María Billeskov og Hinrik Simonarson
03. nóvember 2008 klukkan 19:02
hæhæ
Þið verið að fyrirgefa bloggleisið en ástæðan fyrir því er leti;)
Sunnudagurinn 19 okt var frekar spes hjá okkur Hinrik þar sem við Hinrik fékk símtal frá Svenna vini sínum sem sagðist vera heim á leið og sjáum við eftir honum.. En hinsvegar fékk ég líka símtal frá Rósellu systur sem sagðist bara vera á leiðinni til mín og kæmi í viku heimsókn og já hún kæmi á morgun, svona er að sakna mín, það er bara ekki hægt að vera án mín:p En hún kom á mánudeginum og það var voða gaman að hitta hana. Ég var algjör hetja og tók Metróin til að ná í hana, hef aldrei farið ein í Metró áður;) Það gekk mjög vel nema smá hint: ekki fara út í Kastrup heldur Kastrup lufthavn:p
Hún gisti að mestu heima hjá Sigga stóra bróður þannig ég hitti hann líka, hann ákvað að vera svo geggjað góður og dekra okkur systur og gaf okkur sitthvorn 1000 kallinn (danskar) til þess að versla fyrir:) Við tókum smá verslunar leiðangur og notuðum peningin vel og keyptum alveg helling fyrir hann:)
Föstudeginum eftir fór ég til Glumso til þess að passa óþektarormana mína þar sem pabbi og Guðrún fóru til Fyn í smá afslöpunar ferð án barna þannig við systkynin höfðum það kósy saman. Fór svo með þeim í bíó á high school musical 3 og já.. Get ekki sagt að ég mæli með henni, en ormunum fannst hún sko geðveik og sú besta hingað til þannig í guðana bænum ekki horfa á hinar:p Svo skilaði ég þeim til Glumso og kíkti á djammið um kvöldið, fyrsta skiptið sem ég djammaði í Kaupmannahöfn... Þetta var mjög kósý, vorum 4, ég, Rósella, Lilja og Siggi:) Svo var bara eitt sunnudeginum í afslöppun:) Hinrik ætlaði þessa helgi að fara í einhverja ferð með skólanum en hætti við og ákvað að taka helgina í að læra með Jóni, þeir lærðu og hittu einhverja dani. Jón er semsagt annar íslendingur sem er í skólanum með Hinrik, hann hefur reyndar búið hérna í dk í 10 ár þannig hann er pínu betri í dönskunni en Hinrik, en bara pínu ponsu:p.. Ég hef reyndar aldrei séð þennan Jón þannig Hinrik gæti alveg eins verið búa hann til;) Talandi um þá félaga þá ákvöðu þeir að að hittast til þess að gera heimadæmi, þeir eru samt ekki enn búin að fatta að þetta eru ekki venjuleg heimadæmi. Ég fór í mínu mesta sakleysi að sofa og átti von á honum heim um 1 letið eða eitthva, ég vakna um nóttina og ætla að kúra hjá honum en nei, engin Hinrik, ég lít á klukkuna og hún var 3 takk fyrir! Hann kom ekki heim fyrr en um 4 leitið þar sem þetta tók pínu lengri tíma en hann reiknaði með... Og auðvitað mætti hann í skólann daginn eftir, að vísu pínu þreyttur:)
Annars höfum við það bara gott hérna, við erum reyndar með vott af heimþrá (bara venjulega), sérstaklega þegar maður heyrir af öllum snjónum heima og það er varla frost hér á næturnar, eða jú það er reyndar byrjað að frysta, ég þurfti að lemja ís af hjólinu mínu laugardaginn síðasta þegar ég fór í vinnuna á laugardaginn. Talandi um laugardaginn þá gerðist nókkuð í vinnuni sem ég hef aldrei upplifað áður. Ég ákvað að taka auka vakt til þess að þéna smá pening. Ég var að afgreiða þegar fullur gaur kemur inn í bakaríið og er VEL hress, hann er með smá hávaða en ekkert sem bögga okkur stelpurnar alvarlega og hlæjum bara af honum því hann var frekar asnalegur. Það var eldri maður þarna inni á sama tíma og segir við hann að hann sé að haga sér eins fífl! Fulli gaurinn segir hann að róa sig og segir eitthva við hann þannig að það endar að gamli fer út úr bakaríinu og öskrar að hann sé fífl, en það var ekki búið þar, þar sem annar kall var þarna inni og byrjar líka að drulla yfir fulla gaurinn og þeir bryja eitthva að þræta sem endar þannig að gammli reynir að kýla fulla gaurinn, sem betur fer fara þeir út, fulli heldur áfram að rífa sig þannig það endar þannig að gammli ætlar að hjóla í hann!! Fulli nær rétt að hlaupa inn í bíl og læsa!!! Ég hef aldrei séð annað eins!! Ég veit ekki hvort ég er hneykslaðari á, gaurnum sem var fullur, sem var asnalegur, en samt ekki alveg til að kýla? Eða gammla kallinum hafði ekki meiri þolinmæði en þetta að þurfa að hjóla í einhvern fullan gaur?? Svona er að búa í Danaveldi, fyllibyttur óþolinmæðir gammlir kallar...
Jæja þetta er að verða gott í bili:) Styttist í að tengdó fari að koma og okkur hlakkar mikið til:)
Kveðjur úr baunalandi
Hinrik og María..
ps. takk fyrir bloggið Jónína, geggjað gaman að lesa það:) þessi ferð var snild og bringurnar voru pínu þurrar:p
María Billeskov og Hinrik Simonarson
16. október 2008 klukkan 13:14
Hæhæhæ
Nú er Hinrik í efterårsferie (haustfrí) sem er í viku nema 8 daga hjá honum af því hann er ekki í skólanum á mán. Fólk segir að háskóli sé algjört puð, ekki sé ég það, ekkert nema frí og svo er hann næstum bara eftir hádegi í skólanum, og bara 4 daga vikunar?? (pííííínu bitur)
En greyið veit ekkert hvað hann á að gera af sér þar sem við eigum engan pening, þar sem hann var fastur á Íslandi, þannig hann er búin að hafa það gott og er að baka skúffuköku núna. Hann ber núna mikla virðingu fyrir konum í gammla daga þar sem hann er að gera þetta allt í höndunum, engin hærivél;)
Já semsagt smá drama hjá okkur í sambandi við peninga vandamál þar sem bankarnir hér vildu ekki taka á móti ísl penginum þar sem það var erfitt að fynna rétta verðið fyrir hann þannig að síðustu daga hefur bara staðið 0, pínu ógnvekjandi... En við erum nú heppnari en margir aðrir þar sem við eigum einhverja hérna að í Danmörku og gátum fengið lánað smá pening. En það er búið að opnast aftur og allt saman reddað:) Maður heyrir heldur ekkert annað en kreppa og leiðindi þegar maður heyrir frá Íslandi, ekki gaman þetta ástand, en fólk sem er á leiðinni hingað út eftir kannski tæp 2 ár þarf ekki að hafa neinar áhyggjur þetta reddast allt saman;) Bara að gaman að vera hérna úti, lenda í ævintýrum og fara til útlanda fyrir slik prís tildæmis Liverpol:)
Vinnan gengur vel eins og vanalega NEMA að ég er ekki viss um að geti unnið áfram þar sem ég heeeld að ég sé með ofnæmi fyrir kornunum eða mjög alvarlegt handarexem, hef alltaf verið með smá exem en það er búið margfaldast nuna og er komin með sár á hendurnar, er að fara til læknis á mán og láta skoða þetta, nema núna fær læknirinn ekki að segja "smyrðu þetta krem á þig í 10 daga" ég þarf að fá "greiningu" til að vita hvort ég get unnið þarna ennþá því þetta fer að verða svo slæmt að ég mætti vinna með matvörur:( Er strax byrjuð að leita að nýrri vinnu til öryggis þar sem ég veit af reynslu að það er ekki gefið að fynni vinnu strax, en myndi ekki hætta þarna fyrr en ég fengi aðra vinnu, langar bara ekki að hætta þarna:(
En já langaði bara að segja að við séum á lífi:)
KV María og Hinrik bakarmeistari:)
María Billeskov og Hinrik Simonarson
02. október 2008 klukkan 14:52
Þá er ég búin að vinna í viku í bakaríinu og líkar bara svona vel:) Það er brjálað að gera þarna og tímin flýgur í burtu frá manni:) Verð þó að viðurkenna það að þó þetta séu bara 34 tímar er ég alveg óskaplega þreytt þegar ég kem heim því vinnu þolið mitt er gjörsamlega farið.. bara eftir 6 tíma vakt er ég orðin þreytt í fótunum og alveg dauð þegar ég er á 8 tíma vakt, en þetta kemur með tímanum:) Þær sem ég er að vinna með í afgreiðslunni eru báðar útlærðar: bakari og skreytingarmeistari þannig manni líður hálf kjánalega því maður er eitthva svo "vitlaus" við hliðina á þeim:) Og svo það besta er að þeim líst svona vel á mig:D segja að ég er komin með góðan hraða meðað hvað ég er búin að vinna stutt þarna og ákvöðu að kenna mér að skifta um gluggan (setja þurkökur og rjómakökur í staðin fyrir morgunbrauðið.) Ég gerði það alein í morgun þær vildu ekkert hjálpa mér og ég rúllaði því upp samkvæmmt þeim:D Reyndar var ég klukkutíma lengur en þær gera það venjulega en þeim fannst þetta fínn tími þar sem þetta var bara 7 vaktin mín:) Ein að rifna úr stolti, manni líður svo miklu betur þegar maður veit að maður sé að standa sig vel, því ég hata að vera ný í vinnu og fynnast ég vera alveg ónothæf:)
Svo var ég búin að spá að vinna í gallup líka en það er eginlega útúr kortinu.. Málið er það að ég þarf að minsta kosti vinna 2 vaktir á viku sem eru fra 4 til hálf 10 og ég yrði aldrei komin heim fyrr en um hálf 11 á kvöldin sem er ALLTOF seint því ég er farin að sofa 10 á kvöldin, þar sem ég fer á fætur 5 á morgnana takk fyri. En það kemur allt í ljós..
Maður er líka orðin veeel þreyttur á gengismálum á þar sem það er búið að "stela" af manni tja hellingspening, en næstu mánaðarmót verða mjög næs þar sem við þurfum EKKERT að pæla í þessu gengi því þá erum við komin með tekjur i DÖNSKUM peningum sem mun muna ÖLLU!! Smá dæmi, húsaleigan okkar sem er upp á 6200 dkr er fín leiga meðað við stærð og gæði húsnæðis en í yndælum íslenskum krónum er hún 135 þúsund krónur íslenskar!!! Fyrstu mánaðarmótin hérna borguðum við tæpan 100 þúsundkall, við borguðum 35 þúsund krónum meira núna út af gengis málum, ekki sniðugt þetta.
Þetta þýðir líka að við erum orðin VEL fátæk og þessi mánuður mun verða strembin, en reddast, bara hollt að þurfa skrapa öllu síni klinki og læra að spara almennilega:)
Eins og alltaf er Hinrik sáttur með skólann;) Hann er þar núna að læra heimaverkefni og reiknar með að koma ekki heim fyrr en 7-8 í kvöld, metnaður í gangi:) Félagslífið er líka alltaf á fullu hjá honum og hann er duglegur að taka þátt í því, fór i painball um daginn, mér til mikillar gleði daginn eftir að pota í marblettina hans..híhi.. Svo ánægð og stolt af honum:)
Helgar plan: SLAPPA AF:) Aldrei að vita nema ég fari til Glumsø á sunnudaginn og safni inn fyrir rauðakrossinn með pabba gamla, það er að segja ef gammli vill hafa mig í lið með sér;)
Jæja meira en nóg í bili:)
þreyttar en ánægju kveðjur
María og Hinrik
María Billeskov og Hinrik Simonarson
22. september 2008 klukkan 11:15
LOKSINS!!!
Jæja þá varð loksins af því að ég fékk vinnu!!! Og ég byrja á miðvikudaginn:D Eh já alveg rétt ég er semsagt að fara að vinna í bakríinu sem ég sagði ykkur frá fyrir löngu:) Sko hún sagðist ætla að hringja í mig á á mánudaginn í síðustu viku og láta mig vita, en ég var ekkert búin að heyra frá henni þannig að ég hélt að ég hefði ekki fengið þá vinnu. En þá var það þannig að hún skrapp til Grikklands og allt fór í rugl hjá henni og hún var fyrst að hringja í mig núna. þannig að ég er komin með vinnu júbbí og ég get byrjað strax ekkert með nóvenber:p En já eins og ég sagði þá er þetta 6 til 12 eða 14 vinna og svo ætla ég að reyna að vinna í gallup líka til þess að fá meiri tekjur, ef gallup vill mig:p
Hinrik fór í eitthva party með skólanum um helgina og smiglaði sér inn á ball kriminn sá!!! Var uppselt og allir voru með stimpil þannig að lúmski hann sýndi hendina fram og kallinn sagði að hann væri ekki með stimpil þannig að hann sagðist hafa farið á klósteið og hann hefði þvegist af, en kallin trúði honum ekki. Hann stóð þá fyrir utan var alltaf að horfa á hendina á ser og hringja í alla og segja að hann kæmist ekki inn AFTUR, þannig að kallinn endaði á því að hleypa honum inn.. Hneyksl þetta háskólapakk!!

Ég fór hinsvegar til Kaupmannahafnar þar sem fyrverandi bekkjarsystir mín bauð mér í mat og við fórum svo á tónleika í Tivoli með Tue Vest og Hej matematik, Tue Vest var að verða frægur þegar ég fór frá DK þannig ég þekti eitt lag með honum;) og svo hej matematik er svona grín hljómsveit sem var mjög gaman að hlusta á. En þetta var snildar kvöld sem byrjaði heima hjá henni með 3 rétta máltíð, ekki slæmt það og plús að það var ekkert kjöt, var búin að gleyma að hún er grænmetisæta, en mér fannst það snild þar sem ég hef mjög sjaldan prófað að borða 3 rétta máltíð án kjöts og allt þetta var geggjað gott:D Mikið var spjallað og hlegið, þar sem við vorum ekki búnar að hittast í 3 takk fyrir!! Fórum svo á tónleikana og ég hitti helling af vinum hennar og þetta var bara hin mesta snild:D
Ég komst líka af því þetta kvöld að það með að fynna vinnu fyrst eftir mánuð væri bara mjög algengt og ég ætti að taka því rólega bara. Marie sem ég var með sendi út 27 umsóknir og fékk bara þetta eina svar og fékk vinnu þar.
En já vildi bara deila þessari gleði með ykkur að við erum ekki að fara að svelta hérna úti, þar sem ég ætti að geta haldið okkur uppi:) En talandi um mat, vá hvað það er mikil munur á verði hér og heima!! Við Hinirk elduðum okkur heimatilbúna pizzu með grænmeti og svona og það kostaði 25 danskar krónur á mann! og kvöldmaturinn í kvöld, hakk og pasta, með hvítlauksbrauði og grænmeti mun kosta sirka 30 kr á haus, og kjúllin annað kvöld mun kosta 25 á haus. Semsagt 3 fullar máltiðir fyrir 2 kosta samanlagt 160 dkr!! það er bara ekki neitt meðað við Íslandið!! En vá hvað ég þarf að fá mér líf, ég er búin að plana hvað verður í matin alla þessa vikuna

Og svo eitt í viðbótt, haldið ekki að þegar ég var með strætóinum í gær að eitthva lenti á mér og það var þessi HLUSSU FEITI getungur!!!! Hann var aðeins minni en þumalputtin minn OJ!!! shit hvað ég var við að panika þegar konan við hliðina á mér HÉLT að þetta væri drotning og hún HÉLT að þær stingu ekki!! Frú mín góð það er ekki nóg að HALDA svona hluti!!!Þannig greyið ég hafði ekki stoltið í að færa mig heldur fylgdist ég bara VEL með henni. Það kom meira að segja strákur inn í strætóin og þegar hann sá kvikyndið þá færði hann sig!!!Jesús þessi dýr eru að fara með mig!! þegar ég sagði Hinrik frá rottuni sagði hann mér að alltaf þegar hann færi í skólan sæi hann litla íkorna, já flott ég sé bara hlussu rottur og geitunga!!
Jæja ætla út í búð að kaupa mér líf!
Kveða Hinrik og María
María Billeskov og Hinrik Simonarson
18. september 2008 klukkan 17:48
Jæja ég fór í viðtalið og það kom þannig út að þeir eru ekki að auglýsa fyrr en 20 nóvenber sem er heeeldur seint fyrir mig, en hann var ekki búin að nefna það áður við mig þannig ég er hálf svekt og ENNþÁ atvinnulaus:( EN ég fékk samt svona stöðu í afleysingar semsagt ef einhver er veikur þá er hringt í mig, þeir buðu´mér að vera þannig þangað til í nóvenber og taka svo föstu stöðunna , en það gengur nú ekki þar sem ég veit aldrei hversu mikið ég væri að vinna.... Þannig ég afþakkaði það bæði afþví ég gæti ekki klárað stöðunna þar sem ég kem heim 30 júni og hún endar í júlí eða ágúst og við getum ekki lifað á svona litlum tekjum. Þannig núna er staðan þannig að ég er Vikar í leikskólanum, get hætt hvernær sem er, ég hringdi líka í Irma sem buðu mér vinnu, og gískíð, búðin opnar ekki fyrr en 20 nóv, En hann æltaði þá bara fá mig til að vinna út um allt til þess að ég fá reynslu áður en búiðinn opnar og gæti byrjað sem fyrst HELD ég, er að fara hitta hann á mán. Og svo er ég að fara á námskeið hjá gallup þar sem það virkar þannig að þeir kenna mér á alla hlutina og svo velja þeir bestu út....
Svo hringdi bakaríið í gær og ég veit ekki hvernig staðan er þar,þar sem ég næ ekki aftur í þau...
Þannig ég er komin aftur á byrjunarreit, ekki gaman þetta:( En þetta reddast vonandi....
En við erum loksins búin að taka myndir af íbúðinni...

forstofan okkar:)

Fína stofan okkar

Borið okkar og myndir af fjölskyldunni hans Hinriks

Gammla eldhúsið sem svínvirkar:D

Baðið okkar sem hefur bara eitt blöndunartæki:)

Takið eftir handfanginu sem er þarna til þess að komast á fætur, sýnir kannski hversu gamalt fólk býr í kringum okkur:p

Og svo fína hjólið mitt sem ég fékk í afmælisgjöf frá Sillu og Palla:)
Eru fleyri myndir í almbúminu
´
Nóg í bili...
Kveðjur
María og Hinrik
Ps. ég var að hjóla úr miðbænum og sé ég ekki bara ógeðslega stóra ROTTU á röltinu á miðjum degi takk fyrir!! ojbarsta!!!
María Billeskov og Hinrik Simonarson
11. september 2008 klukkan 10:30
Hæhæ
Gaman að sjá hvað það eru margir að fylgjast með okkur baunabúunum takk fyrir falleg komment og hvetja atvinnuleysingan áfram....
En þannig er mál með vexti að spáin hennar Jónínu er nokkrun vegin sönn:) Ég fór í atvinnu viðtal núna á mánudaginn hjá mcdonalds á strikinu, tökum það fram að ég hef aldrei farið í atvinnuviðtal áður og leið eins og kjána þegar hann spurði mig til dæmis hvernig fyrrverandi kollegar mínir myndu lýsa mér.. En honum leist greinilega vel á mig og hringdi í dag og bauð mér vinnu. EN þar sem þetta er á strikinu fannst mér þetta frekar langt i butu og það voru næturvagtir og svona þannig að ég ákvað að halda árfam að leita að vinnu og var í atvinnuviðtali í dag í bakari þar sem ég gæti hjólað í vinnuna, vinnu timin er frá 6-12 eða 6-14 og launin svipuð og á mcdonald og ég myndi hækka eftir fyrstu 3 mánuðina og ´plús það að það er ALDREI helgarvinna:) EN ég er ekki ein um að vilja fá þessa vinnu þannig að ég þarf að bíða þangað til á þriðjudag til þess að fá svar. Ég er með ágægis líkur þar sem ég hef unnið í bakaríi áður og hef 5 ára reynslu í að afgreiða en það segir lítið ef einhver 50 ára gömul kona kemur og hefur 30 ára afgreiðslu reynslu þannig að.... En já mcdonald gaurinn hringdi og ég afþakkaði þar sem mér fannst þetta frekar langt frá, en hann vildi nú samt fá mig og bauð mér þá vinnu í Herlev sem er ekki svo langt frá hér og gaf mér smá tíma til að hugsa málið....... þannig núna er ég eins og auli og veit ekkert hvað ég á að gera, á ég að taka þá áhættu að reyna fá bakarís starfið eða á ég ekki að taka sénsin? Meina þetta bakrís starf yrði draumur í dós og ég gæti tildæmis unnið með því aðra hverja helgi hjá gallup til þess að ná meiri tekjum, en ef ég færi að vinna á mcdonald þá er endalaus vaktavinna, reyndar betri laun í vaktarvinnu og já það er miklu lengra í burtu en bakarís vinnan....
Og svo loksins er ég að fá svör á fleiri stöðum, bæði það sé búið að fylla inn í þessar stöður og að þeir hafa fengið umsókn mína og eru að vinna með hana, þannig að það er von í þessu grimma lífi...
Góð ráð óskast!!!
En já annrars eins og alltaf mjög gott að frétta af okkur:) Við elskum ennþá nýju íbúðina okkar og elskum að elda í henni þar sem það er sona 20 sinnum stærra en gammla eldhúsið/eldavelin og eldavélin hérna virkar líka svona vel meðað við gammla draslið sem við vorum með.... Við erum líka búin að komast að því að matur hérna í DK er svona milljón sinnum ódýrai en heima, þrátt fyrir asnalega gengið, þannig að við lifum því mjög vel hérna:)
Jæja ég held að þetta sé orðið fínt hjá mér....
Endilega haldið árfam að comennta svo gaman að því:)
kveðjur frá háskóla gaur og stelpunni sem veit ekkert hvað hún á að gera....
María Billeskov og Hinrik Simonarson
04. september 2008 klukkan 10:55
Hæhæ
Loksin er maður komin með net þó það sé soldið vesen á því þar sem þráðlausa netið virkar ekki en bara snúran....
Við erum flutt í íbúðina og það er æðislegt:) Erum komin með eiginlega allt nema dýnu og skraut í íbúðina en það liggur nú svo sem ekkert rosalega á;) við vorum svo heppin að með íbúðinni fylgdi eldhúsborð og sófaborð, fengum við skrifborð, sjónvarpsborð og gammla sjónvarpið mitt frá spurvevej, og svo voru Dagbjört frænka Hinriks og Andrés svo indisleg að lána okkur þennan flotta svefnsófa, nokkra potta, hnýfa og svo eitthvað sé nefnt. þannig að já við sofum bara í honum til að byrja með. Við fórum í IKEA um daginn og ákvuðum að kíkja í "gölluðu búðina" semsagt þar eru hlutir sem eru annað hvort búið að skila eða er eitthvað smá hnjask á. Þar fundum við rúmgafl sem kostaði bara 200 kr, og það besta að við vorum búin að skoða þennan inni í IKEA og ætluðum að kaupa hann í framtíðinni þannig að það var frábært að fynna hann þarna.Við vitum reyndar ekki ennþá hvað er að honum en við höldum að það sé rispa í einni hliðinni en okkur er nú alveg sama um það, bara meðan hann stendur;)
En mér gengur því miður ekkert að fynna vinnu:( ég er búin að sækja á held ég á 10 stöðum eða eitthvað állíka og er að verða VEL þreytt á því að hanga bara heima... reyndar allir þessir staðir erum með síðasta frest um að sækja um einhvern tíman miðjan sept þannig að ég fæ kannski fyrst svar þá. Semsagt ég er ´hvergi búin að fá svar.:( En það er kannksi fínt því þá næ ég að koma okkur fyrir og brasa svona hluti sem maður þarf að gera þegar maður er að flytja eins og að sækja um húsaleigubætur, flytja heimilsfang(AFTUR), þvo ÖLL fötin okkar þar sem er komin "töskufýla" af þeim og svona.... En þetta er samt pínu erfitt fyrir mig þar sem ég hef alltaf verið með vinnnu og ALDREI hefur verið vesen fyrir mig að fá vinnu þannig að þetta er að verða soldið erfitt....
En allt er gott að frétta að Hinrik hann fór í Rustur og skemmti sér konunglega:) Hann skildi víst eitthvað minni en samt farin að skilja fleiri orð en áður.
Honum líst mjög vel á skólan og hefur mikin áhuga á því sem hann er að læra, alltaf jafn gaman að fá hann heim og reyna til dæmis að útkýra fyrir mér að 1 + 1 = 1... Þetta er víst eitthvað tölvumál sem ég skil lítið í og hef ekki mikin áhuga á, gaman að því hvað við erum ólík þegar kemur að því hvað við viljum læra. En eins og háskóla sæmir þá er þetta víst líka pínu erfitt og margt sem hann hefur aldrei séð áður. En danirnir eru víst heldur ekki að skilja allt þannig..
En jæja ég held að þetta sé bara nóg í bili enda orðin ágætis langloka...
Er farin niður í bæ til þess að sækja um húsaleigu bætur og fynna fleiri vinnur:s
Kveðja
Atvinnuleysingin og Háskólastrákurinn
María Billeskov og Hinrik Simonarson
23. ágúst 2008 klukkan 16:54
Við erum komin með íbúð!!! vívívívívív
Eintóm gleði að vera LOKSINS komin með íbúð og þessi íbúð er sko sannkallaður draumur fyrir svona ungt fólk eins og okkur:D
Hún er 60 fermetrar hún er með stóru baðherbergi, stórri stofu, og fínu eldhúsi og svefnherbergi! og Hinrik getur rölt í skólann:D Planið er svo í næstu viku ad fara ad fynna sér vinnu svo ég get haldið Hinriki uppi meðan hann verður sveittur að læra.
Við fórum til Köben i dag og skrifuðum undir 13 bls samning takk fyrir það var pinu kjánalegt þar sem ég (María) þurti að lesa allan samaning yfir því ég hafði jú aldrei séð svona áður og vorum því í klukkutíma hjá henni.:) Kannski einn "galli" staðsetinguna er það að fyrir utan allar hurðir nema okkar eru göngugrindur eða stafir sem sagt við erum eginlega inn á miðju elliheimli:D en tad er bara fint ta eru engin læti a medan:D
Svo fórum við að hitta hann Svenna sem er að fara með Hinrik i DTU og kenndum honum örlítið á kbh þar sem hann hefur aldrei komið til Danmerkur áður.
Jæja langaði bara að deila þessu með ykkur
Bless á meðan
Hinrik og María sem eru ekki að fara að búa á götunni:)
María Billeskov og Hinrik Simonarson
20. ágúst 2008 klukkan 11:45
Tá erum vid komin til danveldis og stadan er svona:
- Vid erum ekki komin med íbúd tar sem vid fengum ekki "draumaibudina":(
- En tad er komin ny draumaibud sem er bara kilometer fra skólanum hans Hinriks og inn i Lyngby sem er mjog gott upp a einhverja vinnu fyrir Mariu. En vid erum ad fara ad skoda hana a fimmtudaginn.
- Ef vid faum ta íbudina ta turfum vid ad fara úr henni 30 juni og ta er planid ad fara heim á klakan og búa hjá foreldrum framm ad haustonn, tar ad segja ef einhver vill fá okkur;) Og ta myndum vid fara inn a kollegi tannig ad tetta myndi allt blessast.
- Maria er semsagt ekki enn komin med vinnu og er eitthvad vodalega roleg yfir tessu tar sem tau eru enn i Glumsø, en er nu samt ordin soldid treytt a tvi ad hanga bara.
- Hinrik er ad fara ad leika kraftamann i næstu viku og ekki bara einn dag heldur 5 daga og er gistir lika, med HELLING af donum tannig Maria væntar ad fa hann til baka altalandi donsku:) En tetta er semsagt med skolanum hans tar sem hann er ad fara i rustur eda i ferd tar sem hopnum sem er ad fara ad læra saman verdur hrist saman.
- Pakkalistin hljomar svona: buningur til tess ad verda kraftamadur, semsagt trong fot og yfirvaraskegg:) pening fyrir smá ol og svo viskastykki og svo peningar fyrir einhvad vokvakent, sefnpoki, handklædi og eitthvad fleira og svo endar listin a ad smá aur fyrir einhverskonar gos eda annad;)
- Mariu list ekkert a tennan haskola lifnad;)
Jæja tetta var sma fra okkur skrifum aftur tegar vid vitum eitthvad um ibud sem verdur vonandi sem fyrst:s
Kv Maria og Hinrik kraftarmadur:)
María Billeskov og Hinrik Simonarson